Jóla hvað !
jólahlaðborð.  Við fórum í jólahlaðborð í gær.  Á Hvolsvöll, gistum þar.  Við fórum með Gumma og Hafdísi, og það var MEIRIHÁTTAR.  Góður matur, jömmí.  Skemmtilega sveitó og frekar ódýrt.  Ji hvað það var gaman.  Strákarnir voru í næturgistingu þannig að við vorum úthvíld, í fyrsta sinn í laaaaaaaangan tíma.  Bergdís og Halli buðu okkur síðan í kvöldmat, heimalagaða pizzu og stuð. Það var frábært, krakkarnir reyndu reyndar að klóra augun úr hvert öðru, en það var gaman. Núna á Gummi aðeins eftir að fara yfir svona um 30 próf og þá er hann komin í jólafrí.  Jey !
sunnudagur, desember 14, 2003
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli