mánudagur, apríl 23, 2007


Ég er aðeins glaðari en þegar ég skrifaði síðustu færslu. Ég var að tala við kennarann minn og það lítur út fyrir að þetta blessist allt með skólann. Sem er auðvitað dásamlegt upp á LÍN, Svín að gera. Gaman að því. Lífið gengur sinn vana gang hérna á Flinte, komin sól og gott veður.
En aðallega langar mig til að auglýsa eftir gleraugunum mínum sem ég týndi á Íslandi, hérna fyrir ofan er sem sagt mynd af mér með gersemin.

fimmtudagur, apríl 19, 2007

Þetta eru bræðurnir á leiðinni í lestinni til Kastrup Lífið að skána, komnir með ís.Komin til Óskar frænku sem kann á svona stráka Spagetti, nammi namm
Í pottinum hjá Ósk frænku og Hinrik

Amma Hildur og Jón Gauti
Einar Kári með bangsa kisu

Ninja og Einar Kári
Með Kristófer frænda íshokkistjörnu


Þetta blogg er alveg að deyja út, enda er ég algerlega búin að missa áhugan á því að segja fréttir af okkur hérna í Danmerku. Mig langar bara heim, heim, heim til Íslands. Ekki seinna en í gær.
En það verður að bíða fram í júlí, þar til þraukum við og látum okkur dreyma um kaldalandið góða. Nokkrar myndir frá íslandsferðinni, myndavélin okkar bilaði reyndar í miðri ferð, en við náðum þó að taka nokkrar myndir. Njótið.

föstudagur, mars 09, 2007

Posted by Picasa









Vikan er búin að vera veikindalaus, guði sé lof fyrir það. Hérna eru myndir sem voru teknar á sædýrasafni í Grenå sl sunnudag en þá var Guðninn orðinn nógu hress til að fara aðeins út.

Annars er leikur veðrið við okkur, ég fór út að hlaupa í gær í 10° hita og sól. Frekar ljúft. Góða helgi gott fólk.

föstudagur, mars 02, 2007





Guðninn minn er lasinn. Hann er búin að vera lasinn lengi en síðustu helgi fékk hann mjög háan hita og er búin að vera með hita síðan. Við misstum ss af stamkúrsinum sem átti að vera í vikunni. Það er bara þannig.

Annars er fátt að frétta, lítið um félagslíf í veikindunum og við látum okkur dagdreyma um húsið okkar og tilveru á Íslandi. Gaman að því.

föstudagur, febrúar 23, 2007


Við vorum alveg í ruglinu í gær. En við sváfum yfir okkur, vöknuðum ekki fyrr en 7:45 sem er náttl rugl. En það voru smurðir matpakkar og liðinu hrúgað út í bíl á milljón. Gummi festi bílinn og við ákváðum að labba með strákana í staðinn. VIð skiptumst á að halda á Jóni Gauta afþví að auðvitað var ekki hægt að keyra kerruna hans í öllum þessum snjó. Elsku karlinn volaði alla leiðina í vöggustofuna sem var lokuð vegna veðurs þegar við komum þangað. Þannig að dagurinn í gær var heimahuggudagur og það var fínt. En við fáum örugglega bjartsýnisverðlaun fyrir að halda það að danskt samfélag virki þegar það snjóar. Mjög stert merki um að að það er kominn tími til að við flytjum heim, við skiljum ekki og munum aldrei skilja þetta fólk.

En annars eru allir með hor niður á axlir og allt að gerast. Lovely.

mánudagur, febrúar 19, 2007



Festelavn er mit navn, boller vil jeg have. Þetta hljómaði hérna um allt hverfi í gær. Við fjölskyldan vorum reyndar hálfslöpp eftir hósta, uppköst og veikindi síðustu viku. Sem betur fer var vetrarfrí og allt skrúfað niður þannig að það slapp. Þannig séð !

En á sunudaginn héldu vinir okkar og nágrannar upp á fastelavn með tilheyrandi tunnuslætti. Einar náði að vera festelavnskongur og slá tunnuna niður. Þetta er þriðja árið sem hann er kongurinn í hverfinu. Tíhí.

En núna eru þeir bræður allir mjög kvefaðir og sljóir, vonandi fer veðrið að hlýna og batna. Burrrr.

miðvikudagur, febrúar 14, 2007







Þetta er sem sagt nýja heimilið okkar en við flytjum í Holtsbúð 3 í júlí. Þetta er búið að ganga hratt og við erum ótrúlega ánægð með að vera á leiðinni heim. Við tökum alltaf ákvarðanir á ljóshraða og þetta var ein af þeim.

Þetta er ss um 200 fm raðhús með innbyggðum bílskúr. Stóru strákarnir fara í Hofstaðaskóla og Jónsinn fer á Lundaból. Ég fæ alveg sæluhroll við tilhugsunina, en við erum búin að vera hérna í 3,5 ár núna í sumar og þetta er bara komið gott. Förum með sól í hjarta og erum reynslunni og nokkuð mikið af nýjum vinum ríkari.

Núna er reyndar bara leiðindatími með greiðslumati, fasteignasölum og sölu á húsinu hérna. Þarf að fara að gera eitthvað af viti í skólanum þó að hugurinn sé allt annars staðar.

miðvikudagur, janúar 31, 2007

Munnlega prófið búið og ég stóðst það. Með herkjum þó, ég var alveg tekin á beinið, grilluð, brædd, sneidd, soðin og síðan étin. Dönsku vinkonur mínar rúlluðu prófinu upp enda þaulvanar munnlegum prófum. En ég náið það er það sem skiptir mig og lín máli.

Er alveg búin á því, ætla að njóta þess að gera ekki neitt þar til að næsta önn byrjar. Lovely þangað til á þriðjudaginn.

þriðjudagur, janúar 23, 2007


Janúar er skrítinn mánuður, kalt, svangt og eymdarlegt. Það er enginn undanteking hérna á Flintebakken 95. En til að snúa á þunglyndislega hegðun og líðan þá fórum við í massa átak. MASSA segi ég og skrifa. Núna er bara virk hreyfing og hollur matur alla daga, lítið rauðvín og almen gleði. Ótrúlegt en satt þá virkar það ! Ég fæ meira að segja borgað fyrir að vera í mínu átaki, ekki bara í gleði heldur í beinhörðum peningum. 1500 dkr fæ ég fyrir það að æfa undir stjórn ph.d nema í sjúkraþjálfun.

En ég er núna heima með Jón Gauta lasaraling en hann er búin að vera veikur síðan um helgina. Hann er með háan hita og slappur. Afþví að ég er í fríi og fer ekki í munnlegt próf fyrr en eftir viku þá er ég heima með honum. Við erum í stuttu máli að verða GEÐVEIK á hvert öðru. Að hanga inni allan daginn er ekki neinum til gagns hvað þá gleði. En svona er þetta.

Stóru strákarnir eru hressir og kátir,byrjaðir á sundnámskeiði og komnir í rútínunu í leikskólanum og skólanum með tilheyrandi vinaheimsóknum.

þriðjudagur, janúar 16, 2007

Jón að borða sítrónu


Jón í hláturskasti !
name="movie"
value="http://www.youtube.com/v/9k4B3MlPqNA">ram>src="http://www.youtube.com/v/9k4B3MlPqNA"
type="application/x-shockwave-flash" width="600"
height="350">

föstudagur, janúar 12, 2007

Hringdi hann ?

Ha, hringdi hver, sagði ég.
Nú hringdi pabbinn sem bað um að sækja Einar, sagði Gummi.
Nei það hefur enginn hringt og ég er búin að vera heima í allan dag þannig að....(ég aftur)

Gummi hafði sem sagt fengið símtal í vinnuna um að sækja eitthvað eða einhvern og hann gerði ráð fyrir því að það væri verið að tala um Einar Kára. Hann hváði 2x í símann en maðurinn (jótinn) hélt áfram að tala jafn hratt og óskýrt og áður. Sem er frekar spes vegna þess að það er frekar augljóst að Gummi er útlendingur og talar með hreim. Gummi endaði á að segja við manninn að hringja frekar í mig afþví að hef meiri "styr på ting".

Eitthvað var Gummi að býsnast yfir þessu þegar hann sótti drengina og var að spyrja Einar hvor hann hefði mælt sér mót við einhvern e skóla. Einar var ekki alveg með það á hreinu en datt svona í hug að þetta hefði getað verið pabbi hans Emils W T sem er með honum í bekk. Síðan kom hann með þessa gullnu setningu ; já alveg rétt ég er ekki búin að segja Emil W T að pabbi talar ekki dönsku. Æi æi klaufinn ég ! Emmm já eða það !

Seinna um kvöldið komumst við svo að þeirri niðurstöðu að þetta hefði sennilega verið gleraugnasalinn sem við vorum að kaupa gleraugu af. En við áttum að sækja þau í vikunni !
Hringdi hann ?

Ha, hringdi hver, sagði ég.
Nú hringdi pabbinn sem bað um að sækja Einar, sagði Gummi.
Nei það hefur enginn hringt og ég er búin að vera heima í allan dag þannig að....(ég aftur)

Gummi hafði sem sagt fengið símtal í vinnuna um að sækja eitthvað eða einhvern og hann gerði ráð fyrir því að það væri verið að tala um Einar Kára. Hann hváði 2x í símann en maðurinn (jótinn) hélt áfram að tala jafn hratt og óskýrt og áður. Sem er frekar spes vegna þess að það er frekar augljóst að Gummi er útlendingur og talar með hreim. Gummi endaði á að segja við manninn að hringja frekar í mig afþví að hef meiri "styr på ting".

Eitthvað var Gummi að býsnast yfir þessu þegar hann sótti drengina og var að spyrja Einar hvor hann hefði mælt sér mót við einhvern e skóla. Einar var ekki alveg með það á hreinu en datt svona í hug að þetta hefði getað verið pabbi hans Emils W T sem er með honum í bekk. Síðan kom hann með þessa gullnu setningu ; já alveg rétt ég er ekki búin að segja Emil W T að pabbi talar ekki dönsku. Æi æi klaufinn ég ! Emmm já eða það !

laugardagur, janúar 06, 2007

Þetta er Jón janúar 2006. Þá var hann ný kominn með 3 tennur. Janúar var leiðindamánuður með þó skemmtilegri heimsókn, en Karen og Grétar kíktu í eins og eina mastersvörn.



Febrúar var tíðandalítill með festelavn og það helsta í fréttum var talkennsla og stuðningur við Guðna í leikskólanum.



Mars var kaldasti marsmánuður frá upphafi mælinga. En tíðindalítill annars.



Apríl Fórum til Íslands. Skiptum um íbúð við stjúpbróður Gumma og það var Snilllld. Það var gaman og gott að hitta allt þetta frábæra fólk sem við eigum og þekkjum.



Maí Afmæli Einars Kára sem við héldum á Römö.




Júní Dep Mode tónleikarnir, Gummi og Hafdís komu í heimsókn og annars bara sumar og sól. Frekar huggó bara.



Júlí Bella, bella Italia. Keyrðum til Italíu eftir velheppnaða sumarfest hjá vinnunni hans Gumma. Erum ástfangin af Italíu en ætlum ekki þangað að ári. Frakkland freistar.



Ágúst Heitasta sumar í Danmerku í 50 ár. Það fannst okkur ekki leiðinlegt. Við gátum meira að segja platað ömmu Tótu í heimsókn. Einar byrjaði í Jellebakkeskolen i 0.B. Det er hård arbejde eins og hann segir sjálfur.




September Ég byrjaði í skólanum, Karen og Grétar komu í heimsókn og verkfallið byrjaði.




Október VERKFALL í leikskóla, vöggustofu og frítidhjem. Þarna reyndi virkilega á skipulagshæfileika okkar hjóna. Þetta var nú samt allt stórslysalaust og við lifðum þetta af.



Nóvember Afmæli Gumma og Guðna. Íslandaferð Gumma og stelpuferð mín til Köben.



Desember Byrjuðum mánuðinn á að fara til Köben í afmæli Hinriks mágs hans Gumma. Einar missti tönn en annars var mánuðurinn helgaður Ritgerðarstressi með jólahygge og áramótum í Köben. Alveg ógleymanlegt.

laugardagur, desember 23, 2006


Þorláksmessa alveg að verða búin. Púha hvað það er búið að vera mikið að gera. Við hjónin vorum búin að sjá fyrir okkur að við værum að dúlla okkur í allan dag við að þrífa höllina. Svona með annarri á meðan hlustað væri á góða jólatónlist og sötrað glögg. Niii það var ekki alveg málið, það er búin að vera full keyrsla síðan kl 7 í morgun. BRJÁLAÐ að gera. Samt vorum við "búin" að öllu. Skrítið ! En jólin koma 24 des sama hvernig stendur á. Við erum reyndar langt komin með allt, búið að skreyta tréið, búið að fara í jólabaðið, búið að skipta á rúmunum, búið að gera fromasinn og ég býst við að þetta verði bara huggulegt og afslappað á morgun. Lúvlí.

miðvikudagur, desember 20, 2006


Skyrgámur kom í nótt, held ég. En ég er alveg að gefast upp á þessu jólasveinadæmi, þetta er bara rugl, strákarnir voru vaknaðir kl 5:45 til að kíkja í skóinn. Og þeir gátu ekki sofnað aftur, arg. Við vorum ss öll komin á fætur kl 6:30, aðeins of snemmt f minn smekk.

En afmælisdagurinn var góður, ég fékk fullt af pökkum og mörg meil og margar símhringingar. Takk fyrir það kæra fólk. Frá Gumma og strákunum fékk ég náttföt, inniskó, húfu, trefil og vettlinga. Lúxus. Svo var eldaður góður matur og haft huggó, aaaaaaalla helgina. Ekki slæmt.

Núna sit ég og er að leggja lokahöndina á ritgerðina mína. Það er gaman, það er gaman að klára. Á föstudaginn erum við svo öll komin í langt frí fram á 2 jan, en þá byrjar skólinn með öllu stuðinu aftur.

Gleðileg jól gott fólk.

föstudagur, desember 15, 2006


jeg har tabt en tand og nu er den væk. Nu er jeg bange for at jeg ikke for nogle penge. Hvad siger du søde tandfe er der noget jeg kan gøre til at få penge selv om jeg ikke har nogen tand at give dig.

Knus og kram din ven Einar Kari

Þetta bréf skrifaði Einar til tannálfsins en hann týndi tönninni sinni og var alveg eyðilagður afþví að hann var viss um að fá þá engan pening.

fimmtudagur, desember 14, 2006

miðvikudagur, desember 13, 2006

ÝKT pirruð núna, málið er að við höfum yfirleitt haft ágætisverkaskiptingu í jólakortabransanum á heimilinu. Verkaskiptingin er þannig að ég panta kortin, skrifa, endurnýja listann og kaupi frímerki. Gummi sér um að skemmta mér á meðan, hann prentaði reyndar út heimilisfangalímmiðana í ár en yfirleitt hefur hann séð aðallega um að skenkja mér rauðvín á meðan ég skrifa.

Í ár ákvað ég svo að treysta Gumma til að setja frímerkin á kortin með þeim stórkostlega árangri að þau eru í vitlausi horni á mörgum kortum. SS ekki í efri hægra horni heldur neðra vinstra horni, ekki nóg með það þá þarf að snúa þeim við til að lesa heimilisfangið. Ég vona að postdanmark komi ekki og handtaki okkur fyrir ruglið. Danir eru ekkert sérlega líbí þegar að kemur svona rugli.

En ég er í miðjum ritgerðarskrifum og má ekki við svona rugli, ég fór alveg á límingunum. ARG !