föstudagur, maí 18, 2007


Mér finnst rosalega gaman að vera í skóla, sem betur fer ég er td búin að hanga í háskólanámi í tæp sjö ár þannig að það er eins gott að hafa gaman að. Eða sko, mér finnst gaman 10 mánuði á ári. Þessir tveir mánuðir desember og mai finnst mér alveg viðbjóðslega erfiðir og leiðinlegir, verkefnaskil og pressan er alveg að drepa mig. Ekki að fíla þetta !

Svo fyrir utan það þá eru desember og mai frekar pirrandi mánuðir, þannig séð. Desember er (eins og flestir vita) jólamánuður og þ.a.l stútfullur af allskonar uppákomum og hullumhæi. Og afþví að ég er svo mikið kontrolfrík þá get ég ekki hugsað mér að missa af neinu og er helst í stjórn að skipuleggja líka. Þannig að það er sífellt verið að trufla mig við lesturinn og það gerir mig rosalega pirraða.

Mai er svipað klúður, hann er fullur af frídögum, 1 mai, uppstigningadagur og svo hvítasunnan. Ég meina HALLÓ, er þetta eitthvað persónulegt á mig ? Þolliddaikke.

Fyrir utan það að tveir elstu synir mínir eiga afmæli í þessum mánuðum, Ok Guðni er alveg í lok nóv en þá er maður samt sem áður að detta í gírinn. Einar er 12 mai og það er alveg í miðjum klíðum. Svo kann maður ekki við að ljúga að þeim að afmælin þeirra séu á öðrum dögum og eins vill maður halda flottustu afmælin í götunni. Bjóða ÖLLUM bara svona til að deyfa samviskubitið fyrir að hafa vera pirruð og geðstirð meira eða minna allan mánuðinn.

Annars er allt í góðu og ég óska ykkur öllum saman til hamingju með nýju stjórnina. Myndin hérna efst er tekin eftir afmælið hans Einars Kára og eftir 1 rauðvín. Ægilega hamingjusamir foreldrar. Múhahahaha.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

nú geri ég aðra tilraun að kommenta hjá þér, þrátt fyrir að mér hafi verið hafnað upp á síðkastið. En gleymdurðu ekki að setja myndina, eitthvað meira hlýtur að fara fyrir hamingjunni

Nafnlaus sagði...

....ekki alveg svona nafnlaus....kv. Bera

Hafdís sagði...

ég ætla að vona að hann jón hafi ekki hjálpað ykkur með flöskuna! svo ætla ég líka að vona að hann tommi vinur ykkar hafi ekki passað í gær! nei ég var búin að gleyma því, hann er ekki vinur ykkar lengur!

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir dásamlegt myndband. Man eftir afmælum bræðra minna. Alveg hræðilegt ef ekki viðraði til að senda þá út eftir gosið og kökurnar. Hlakka til 2. ára afmælis í sumar!
Mamma

Flintebakken fjölskyldan sagði...

Bera- takk fyrir innlitið.
Hafdís- það er eins og JG hafi líka fengið sér smá rauðvín, en svo er ekki, drengurinn er síkátur. Múhahaha.
Mamma- 2ja ára afmælið verður haldið með pompi og prakt í tómu húsi. Hlakka til.

Karen Áslaug sagði...

Æðisleg mynd af ykkur! Þið myndið vinna verðlaun ef þið senduð myndina í keppni um Hressustu og brosmildustu fjölskylduna :-) Maí er alveg að vera búin og þá er hrikalega langt í desember og margt skemmtilegt í millitíðinni jíhaaaa. Knúzzzzz

Nafnlaus sagði...

já þið eruð rosa sæt, nú sé ég líka myndina, en hún var altsvo ekki þarna þegar ég kíkti fyrst (Gumma koma eflaust alskonar skýringar á því í hug, hann hugsar alltaf svo fallega)...Bera